Færsluflokkur: Dægurmál

Stofnfundur fyrsta Víkingafélags Akureyrar 6. mars n.k.

null

Stofnfundur fyrsta Víkingafélags Akureyrar verður að Kaffi Amor laugardaginn 6. mars n.k. kl. 14:00. Allir sem áhuga hafa á menningu víkinga og sögu þeirra eru velkomnir.

Stofnfundur þessi markar tímamót í sögu félagsskapar á Akureyri og er von aðstandenda að allir sem áhuga hafa á að gerast félagar í fyrsta Víkingafélagi Akureyrar mæti og taki þátt í starfi því er bíður þeirra sem áhuga hafa.

Kosið verður í stjórn félagsins, auk þess sem viðraðar verða þær hugmyndir að nafni fyrir félagið. 

Þeir sem standa að stofnun félagsins eru m.a. Sigurður Guðmundsson verslunarmaður á Akureyri sem jafnframt er einn aðalhvatamaður þess að félagið verði stofnað. Einnig er Víkingafélagið Einherjar í Reykjavík sem veita liðsinni með stofnun félagsins en heimamenn koma til með að stýra félaginu á sjálfstæðan hátt og því fyrsta á Akureyri.viking_967212.jpg


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband